hannamaggy.bloggar.is
Gleđileg jól allir saman!!Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja ég held að það sé kominn tími á nýjar fréttir.Ég tók stóra ákvörðun um daginn, ég ákvað að vera hér heima og hætta við að fara út til Þýskalands.
Ég er byrjuð að vinna á leikskólanum Krakkakoti hér á Álftanesi og ég elska að vinna þar. Krakkarnir eru öll með tölu alveg æðilseg og mér finnst gaman að að mæta í vinnuna :)
Þrátt fyrir 100% vinnu á leikskólanum tými ég ekki alveg að hætta að vinna á Dominos þar er alltaf gaman að vera og ég er þar nokkur kvöld í viku og um helgar :)
Jæja gærkvöldið var alveg æðislegt: Það fækkaði soldið í hópnum okkar en hér vorum við familyan, Folda og amma. Við borðuðum geggjaðan mat og eftir að við vorum búin að ganga frá opnuðum við pakkana. Ég var rosalega ánægð með allar gjafirnar mínar ætla að segja aðeins frá :)
Mamma og pabbi: Cintamani peysa og scrabble
Mamma: Cintamani húfa
Ágúst: Jeff Buckley geisladisk og DVD
Hjalti: DVD mynd
Garri: Bolli með nafninu mínu
Amma, Folda og Lolli: DVD mynd og gjafabréf í Smáralind
Afi: gjafabréf í smáralind og Grjót (til að þyngja pakkann ;))
Hoffý og co: Pictionary
Þrúða: geggjða flott hettupeysa
María: Gjafabréf í Kringluna
Unnur Sveins: Rúmföt, húfa og kerti
Elín og Stebbi: kökudiskur
Leikskólinn: Kaffikarfa með fullt af dóti og kertastjaka
Dominos: 2x DVD myndir
Svo fékk ég konfekt frá tveimur mömmum á leikskólanum
Mér sýnist þetta vera allt sem ég fékk. Takk æðislega allir!! :D
Þá eru það bara áramótin eftir!! Hver ætlar að halda Gamlárspartý??
Jæja þangað til næst..

Gleðilega hátíð allir saman :*
-Hanna Maggý-
Fer bráđum ađ flytja til Ţýskalands!Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. Þessa dagana er ég bara búin að vera að vinna og vinna eins og ég er búin að gera síðan ég kom hingað. Þetta er svo sem ágætt, dagarnir eru ennþá fljótir að líða þótt að mér finnist þetta ekki alveg jafn skemmtilegt og í byrjun. Fólkið sem ég er að vinna með er skemmtilegt og hef ég gaman af pólverjunum.. Þeir voru 4 að vinna á laugardaginn og tóku yfir pleisinu..hehe.. þeir töluðu bara pólsku og voru að reyna að kenna mér eitthvað eins og "góðan daginn" man nú samt ekki alveg hvernig það er sagt.. og þeir settu pólskt rapp á fónin og blöstuðu græjurnar.. hehe.. svo hlóu þeir eins og vitleysingar..Jæja.. þá er komið að stórfréttunum!! Róbert er búin að skrifa undir íbúð fyrir okkur í Þýskalandi :D Hún er staðsett í miðbæ Trier, aðeins tveggja mín labb frá göngugötunni. Þetta er um 100 fm íbúð, í tvíbýli, á tvem hæðum (eitt herb. og þvottahús í kjallaranum).. Eini gallinn við þetta er að húsið er gjörsamlega tómt! það er ekki einusinni eldhúsinnrétting í því.. Þetta tíðkast víst í Þýskalandi að fólk pakkar bara eldhúsinnréttingunni og eldavélinni og öllum pakkanum niður þegar það flytur.. Við þurfum að byrja algjörlega frá grunni.. Það er soldið erfitt vegna þess að við erum ekki á Íslandi, ef við værum hér heima væri auðvelt að sanka að sér gömlum húsgögnum frá ættingum en af því að það er svo dýrt að senda þau út er örugglega bara ódýrara að kaupa þau þar.. Við byrjum bara á því nauðsynlega og svo kemur restin bara með tímanum :) Það góða sem kemur á móti þessarri peningaeyðslu í húsgögn og innréttingar er leiguverðið.. það er ekki neitt!!
Þetta er bara gaman og spennandi :D Ég hlakka geggjað til að fara aftur út til Róberts míns :*
Ég er búin að lofa Ágústi bró að vinna til 25. nóv. því þá líkur megaviku á Diminos. Ég er búin að vera að skoða flug á netinu og sýnist það vera skynsamlegast að fljúga með Icelandexpress til London og þaðan til Hahn. Það er meira en helmingi ódýrara en að fljúga beint til Frankfurt með Icelandair. Á tímabili var ég að spá í að gefa skít í verðið og fara bara með Icelandair því ég þoli ekki að fara í gegn um Stansted flugvöll þetta er leiðinlegasti flugvöllur sem hægt er að fara í gegn um.. En víst að verðmunurinn er svona mikill er ég að pæla í að gefa undan og drattast til Stansted..
Jæja.. ég hef ekki mikið meira að segja.. ætla að drífa mig í bólið, vinna í fyrramálið.
Þangað til næst,
- Hanna -
Vinna, vinna, vinna!Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. Nú er ég búin að vera í um 3 vikur hérna heima og er búin að vinna þær allar nema fyrstu tvo dagana. Ég er oftast að vinna í um 10 tíma á dag, þannig að það er ekki skrítið að ég sé ekki búin að hitta marga hér heima. Ég er mest með Ágústi bró og svo er litli bró stundum að vinna með okkur. Ef þið viljið hitta mig er ég niðrá Dominos, Skúlagötu frá 10 til svona 8,9, á hverjum degi :) Ég er búin að borða pizzu núna í 19 daga í röð (fyrir utan 2) og get nú afsannað þá kenningu um að pizzur séu fitandi.. ekki fitna ég við þetta.. hehe.. ég hélt að ég myndi fara rúllandi út til Róberts aftur.. en með þessu áframhaldi gerist það nú ekki..
Ég fæ frí í vinnunni bæði á morgun og á sunnudaginn því ég er að fara í afmæli til Péts og Magga í félagsheimili fyrir norðan (man ekki alveg hvar í augnarblikinu).. en þar verður svaka stuð og gist verður í eina nótt :)
Svo fæ ég líka frí í vinnunni á þriðjudaginn því ég þarf víst að láta taka eitt stykki endajaksl úr mér áður en ég fer aftur út.

Ég var að tala við Róbert áðan og hann byrjar að fljúga í HAHN á fimmtudaginn NÆSTA svo að það fer að styttast í að ég fari út. Róbert ætlar að finna einhvern stað fyrir okkur að búa á (í Trier) áður en ég fer út því ég er ekki alveg til að þetta hótel hangs aftur.. en það er stutt í að ég hitti krúsann minn aftur.. :*
Jæja.. hef ekki fleiri fréttir að færa í bili..
Over and out - Hanna Dominosmær :p
Chillađ heima :PHanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. Þá er ég komin aftur heim til íslands.Síðustu dagana í Frakklandi fórum við Róbert í tvær bæjarferðir, fyrst til Aix en Provence, sem er ríkramannahverfi um 40 mín frá flugvellinum.. svaka flott, allt út í gosbrunnum og vatnslistaverkum. Svo fórum við daginn eftir til Marseille í þvottaferð. Fórum til gamla með þvottinn og röltum um bæjinn á meðan við biðum. Þessir tveir bæjir eru mjög ólíkir, í Marseille situr betlari á hverri tröppu og við hvern hraðbanka og biður um klink, en ég held að ég hafi ekki séð 1 betlara þarna í Aix. Við skoðuðum íbúðir þar og sáum eina 100 fermetra á 50 milljónir.. haha..frekar dýrt.
Ferðin heim var mjög þæginleg.. Ég vaknaði kl. 6 og Róbert fylgdi mér út á flugvöll. Þangað vorum við mætt kl hálf 7 og flugið fór kl hálf 8.. þannig að ég þurfti ekki að bíða mikið eftir að ég kom þangað. við lentum í UK um hálf 9 á breskum tíma og ég þurfti ekki að bíða lengi eftir að geta tékkað mig inn.. þannig að ég fór um leið og ég gat í gegn. Þar keypti ég mér að borða og 3 bækur og byrjaði að lesa. Flugið frá UK var um hádegið og ég lenti í Keflavík um hálf 3. Mamma, Þrúða og Hjalti komu og sóttu mig á flugvöllinn og eftir að við skiluðum mömmu og Hjalta heim skelltum við Þrúða okkur á KFC..mmm.. það var gott :P Þar hittum við Heiðu vinkonu Þrúðu sem lánaði mér svo grímubúning sem ég var í um kvöldið.
Um kvöldið var svo Grímubúningapartý heima. Þar komu saman barnabörn og barnabarnabörn (Ég og Ágúst) ömmu langó, stór og skemmtilegur hópur þar á ferð. Allir mættu í grímubúningum og var þetta geggjað skemmtilegt kvöld :) Við fengum rosalega góðan kjúklingapottrétt ala mamma að borða og ansi mikið áfengi var drukkið.. Við fórum í leiki og þótt að aldursmunurinn sé mikill á þessum hópi 16-43 ára, var eins og allir væru jafngamlir og allir skemmtu sér jafn vel! Þegar leið á kvöldið bjó pabbi til svaka trekt sem allir urðu að gjöra svo vel að drekka úr.. Þar var engin miskun gefin.. Haha..

Þegar kengúra og Siggi sæti koma saman, verður úr því tígrisdýr.
Gærdagurinn fór í chill og svo fór ég í bíó með Þrúðu og Heiðu á "No reservation". Þetta var rómantísk mynd og heyrði maður snökt í kring um sig. Mér fannst hún góð :)
Í dag vaknaði ég klukkan 8 og er bara búin að vara að chilla síðan.. ég er orðin föst í chillinu.. langaði að kíkja til Hoffýar eða að gefa blóð.. en ég bara hreinlega nennti því ekki.. verð að fara að hrista mig upp úr þessarri leti..
Nú er ég alveg hætt að drekka kaffi og hausverkurinn er horfinn :) þetta tók bara nokkra daga!
Jæja.. sorrý bloggletina á mér, skal vera duglegari :)
- Hanna -
P.s. Það eru fleiri myndir úr partýinu í myndalbúminu :D
Heim til Íslands eftir 6 daga :)Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jebb.. þið lásuð rétt.. ég ætla að skella mér heim á meðan Róbert er að fljúga hér í Marseille. Ég held að ég myndi verða geðveik á að vera hér í mánuð í viðbót og al ein mest allan tíman.. Það er ekkert grín hvað það er lítið að gera hér.. Ég t.d. horfði á 2 myndir í gær, Man On Fire og Walk The Line, svaka góðar myndir. Ég get nú reyndar farið á eftir og legið á sundlaugarbakkanum og svo ætla ég að fara mína daglegu ferð á pastastaðinn á flugvellinum og fá mér sama pastaréttinn og ég er búin að borða á hverjum degi síðan við komum hingað, penne pasta í bolobese sósu og bræddum osti.Þegar ég kem heim ætla ég að vinna á Dominos hjá Ágústi bró í fullu starfi, svo að ég er ekki að koma heim til að chilla eins og síðast.
Róbert er að fljúga hér til 28. október svo að ég fer aftur út eftir þann tíma, ef hann þarf ekki að halda áfram hér í Marseille eftir það.
Hef ekki meira að segja í bili.. ætla að drífa mig út í sólina :)
Hlakka til að sjá ykkur!
Hanna
Biđin tekur ekki enda á nćstunni.Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. Róbert fékk nýtt plan í gæri og á því stendur að við verðum hér í Marseille í MÁNUÐ í viðbót! Ég er ekki alveg ánægð með þetta plan því ég var farin að vona að komast til Þýskalands í næstu viku. Það er kannski skrítið að heyra mig segja þetta því ég var alveg búin að útiloka Þýskaland, en ég vil fara að komast þangað. En svona er þetta, Róbert fær bara plan og verður að fljúga eftir því. Nú er hann samt búinn með þjálfunina og fær því borgað tímakaup líka.. þannig að það er kannski gott að vera hér í mánuð því hér eyðum við svo litlum peningum, hér er ekkert til að eyða peningum í.. Ég aftur á móti veit ekkert hvað ég á að eyða þessum mánuði í því að um leið og Róbert er búin með þjálfunina er hann látinn fljúga eins mikið og hann má.. og það er sko mikið. Ég hringdi í mömmu áðan og hún ætlar að senda mér einhverjar bækur að lesa, því hér eru bara bækur á frönsku eða bækur sem mér langar ekki að lesa á enksu.Veðrið er ekki gott í dag, frekar skýjað svo að ég get ekki farið út í garð.. Ég ætla að horfa á einhverjar skemmtilegar bíómyndir :)
Jæja.. ekki fleiri frétttir í bili..
Hanna
P.s. Mamma, póstkortið er á leiðinni :)
Biđ og ennţá meiri biđ..Hanna Maggý Kristjánsdóttir
P.S. Ég sé nú að það eru búnir að fara 25 inn á síðuna mína í dag, en það er bara 1 comment. Mér langar að vita hverjir eru að fylgjast með okkur.. Svo að allir saman nú, skiljið annað hvort eftir comment eða skrifið í gestabókina :).. Við erum ennþá í Marseille.. Við erum búin að vera hér síðan 18. sept. og bíðum eftir að eitthvað gerist. Róbert kláraði prófið á sunnudaginn og þá var honum sagt að hann myndi fá símtal daginn eftir eða daginn eftir það, og þar væri samningur og fastur staður til að vera á .. Hann beið og beið.. mjög óþolinmóður en hringdi svo í þá um morguninn á þriðjudaginn.. þá var honum sagt að Frankfurt Hahn væri örugglega ekki laust fyrir okkur en kjellan myndi hringja í hann innan tveggja daga.. Þá hélt biðin áfram og Róbert hélt áfram að vera óþolinmóður. Svo í morgun gat hann ekki beðið lengur og hringdi aftur í sömu konuna. Þá sagði hún að kallinn sem sér um að láta menn frá base væri í fríi, eins og allir sem eru búnir að þurfa að hjálpa okkur, og hún hefur samband í byrjun næstu viku. Hún sagði reyndar núna að það væru nokkrar lausar stöður í Hahn svo að við vonum að við komumst að þar. Við erum nú samt búin að læra það núna að það er ekki allt 100% sem okkur er sagt, svo að við bíðum bara eftir símtalinu í byrjun næstu viku og vonum að við fáum Hahn. Þá myndum við búa í Trier sem er nokkuð stór háskólabær í Þýskalandi. Þar er allt til alls og ég gæti fundið mér eitthvað skemmtilegt að gera.
Við skelltum okkur á fína hótelið um daginn og fengum okkur að borða, ég fékk mér svaka fínt pasta, rosa gott .. Myndir:


Hér erum við að bíða eftir matnum okkar :)
Núna höfum við akkúrat ekkert að gera og erum að drepast úr leiðindum.. Veðrið er ekki gott úti, sólin er ekki búin að láta sjá sig í dag og vindurinn er mikill þannig að við nennum ekki mikið að fara út.. Það er hvort sem er ekkert að gera úti svo að við sitjum bara á hótelinu og höldum áfram að bíða eftir því sem er alltaf alveg að fara að gerast.. Er þetta samt ekki oftast svona þegar maður er að bíða eftir einhverju?.. það kemur alltaf eitthvað uppá.
Róbert fer að fljúga á morgun svo að ég ætla að biðja til veðurguðana að senda mér sól svo að ég geti legið á sundlaugarbakkanum á Hótelinu við hliðiná á meðan hann er að vinna.
Við ætlum að fara á fína hótelið og tékka hvort við finnum okkur eitthvað að gera þar..
Svo að þangað til næst..

- Hanna -
P.S. Ég sé nú að það eru búnir að fara 22 inn á síðuna mína í dag.. en það er bara 1 comment. Mér langar að vita hverjir eru að fylgjast með okkur. Svo að allir saman nú, skiljið annað hvort eftir comment eða skrifið í gestabókina :)
Myndataka :PHanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. þá er það myndataka af útsýni, herbergi og okkur hér í Marseille.Þetta er það sem við sjáum út um gluggan:

Fína hótelið sem við ætlum að fara og borða á í kvöld :)

Hótelið sem við förum á í morgunmat og til þess að liggja í sólbaði ;D

Svaka útsýni!

Rúmið okkar og draslið mitt :P

Klósettið er þarna og litla sjónvarpið, (BBC er aðal áhorfsefnið í þessu TV)

Róbert að hvíla sig eftir vinnuna.
Yfir í fréttir :) Róbert tók prófið í dag sem hann átti að taka 1. okt svo að allt er búið :D Nú býður hann eftir símtali frá Ryanair og nýjum samningi. Nú tekur örugglega við 6 daga bið og svo VONANDI (allir að krossleggja fingur) fastur staður að vera á :) Við ætlum að fara yfir á fína hótelið í kvöld og fá okkur góðan mat og fagna velgengi Róberts :*
Ég kláraði "One Child" í gær. Ég ætlaði að reyna að spara hana en bara gat ekki látið hana frá mér. Þessi lestur tók mig aðeins 5 daga og er það persónulegt met sem ég hélt ég myndi aldrei ná. Nú bíð ég spennt eftir að komast til Bretlands til að geta keypt mér framhaldið af bókinni sem heitir "The Tiger's Child". Ég mæli eindreigið með að allir lesi þessa bók eða allavega horfi á myndina "untamed Love" sem var gerð eftir henni. Höfundurinn er snillingur sem heitir Torey Hayden.
Jæja þangað til næst ... Nei bíddu ég gleymdi að setja mynd af mér..

- Hanna -
21. September!Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. ég skal sko sýna ykkur hvernig brjálæðingar blogga.. 2 dagar í röð :PLangar bara að skella inn smá færslu í tilefni þess að langamma mín, hún amma á langó, eða amma Fríða á afmæli í dag. Hún er orðin ekki meira né minna en 90 ára gömul :) Til hamingju með afmælið amma mín, ég vona að þú hafir fengið skeytið ;) Fjölskyldan ætlar að hittast heima hjá henni í kvöld og borða kökur, þau eru örugglega öll þar í þessum töluðu orðum að smjatta á góðgætum. Væri nú alveg til í smá kökubita :)

Hér er Amma langó ásamt afa Kristjáni í útskriftinni minni :*
Ég vil líka óska mínum góðvini honum Unnari til hamingju með 19 ára afmælið og Bjössa til hamingju með tvítugs afmælið, velkominn í hópinn :)
Hjalti litli bró er byrjaður að vinna hjá Dominos! Hann er duglegur eins og systkinin sín ;)
Róbert fékk ekki nýtt plan í dag því síðasta plan var upp á tvær vikur, svo að við verðum hér í Marseille í 1 viku í viðbót. Róbert tekur prófið 1. október og fær nýjan samning þegar því er lokið. Capteinninn sem hann var með í dag sagði honum að víst hann sótti um Hahn er góður möguleiki að við fáum það beis því það er að stækka mikið. Við vonum bara það besta :)
Ég er með einar slæmar fréttir, en ég held að það sé ekki mikill möguleiki á að Róbert fái frí um jólin eða áramótin. Ég ætla samt að halda áfram að vona það besta þangað til að það er staðfest.
Jæja.. Hef ekki fleira að segja frá í bili!
- Hanna -
Mareille - Aftur!Hanna Maggý Kristjánsdóttir
Jæja.. þá erum við komin aftur til Marseille, og erum búin að vera hér í 2 daga. Því miður eru engar fréttir héðan svo að ég setti inn örfáar myndir til að bæta ykkur það upp :P Við erum bara á gamla góða hótelinu og líkar það vel. Ég er ekki búin að fara yfir í sunlaugina ennþá en geri það kannski á morgun.Ég gleymdi að segja frá því um daginn að ég kláraði mína fyrstu ensku bók og er mjög stolt af því. Það tók mig reyndar 2 mánuði að klára hana, en það tóks þó. Þessi bók heitir Waisted og fjallaði um strák sem var ekki elskaður af pabba sínum sem barði hann og mömmu hans til óbóta svo að hann byrjaði í dópi og lenti á götunni í London. svaka spennó! Þetta var fimmta bókin sem ég klára á minni æfi (fyrir utan einhverjar barnabækur). Nú er ég svo byrjuð á nýrri bók sem ég keypti mér á Stansted og er strax hálfnuð með hana á 3 dögum svo að ég þarf eiginlega að spara hana sem er frekar erfitt. Þessi bók heitir One Child og mæli ég eindregið með henni!
Róbert fór í fyrsta flugið sitt heðan frá Marseille í gær og capteininn mælti með honum í prófið. Því miður getur hann ekki tekið prófið fyrr en í næstu viku því það þarf að vera 4 leggir en hann flýgur bara 2 leggi í senn í þessarri viku. Þetta þýðir að þetta sé allt að klárast og við förum vonandi að fara að fá fastan stað að vera á :)
Við skelltum okkur til Marseille í dag til þess að fara með fötin okkar í þvott. Við fórum til Gamla með fötin, hann er byrjaður að þekkja okkur kallinn. Við skildum fötin eftir hjá honum í klukkutíma og fengum okkur að borða á meðan.. Róbert fékk sér kínamat en ég fékk mér Kebab með frönskum .. mmm.. Þegar við komum aftur til hans var hann að horfa á sjónvarpið.. og allt í lagi með það.. allt á frönsku nottlega, en allt í einu heyrði ég "það er síminn til þín" og leit á sjónvarpið.. þá var það einhver franskur þáttur um Ísland.. hehe, franska fólkið var að reyna að segja íslensk götu- og staðarnöfn en ekki gekk það vel.. Soldið findið að heyra íslensku í frönsku sjónvarpi :)
Jæja.. ef þið viljið að ég bloggi verðiði að koma með eitthvað umræðuefni því að ekki gerist mikið hér í Marseille :P
Kveð í bili!

- Hanna -
P.s. Setti inn fleiri myndir og ætla að reyna að vera dugeg að setja inn myndir, þið verðið bara að tékka á þeim öðru hvoru :)
